Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
kuldi
Aðeins 7dagar skráðir til heimferðar Tíminn líður ótrúlega fljótt Siggi John kemur 5.júní. Góða heimferð.Ég bíð með kjötsúpuna í pottinum Ástarkveðja Mamma(Hér frýs enn á nóttinni en sól á daginn)
Unnur (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 24. apr. 2009
myndasýning
Sæl kæra systir mín, Gott verður að fá þig heim. Ef þig vantar sal fyrir myndasýningu þá eru Fornubúðir klárar. Flóki er við þokkalega hundaheilsu. Allir hressir og biðja að heilsa. k kv. Lalli.
Lárus (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 20. apr. 2009
Vor í lofti
Kominn vorhugur hér. Svanirnir mættir.Sá par fljúgandi í dag líklega á leið uppá tjörn .Skógarþrestirnir farnir að para sig.Töldum 9 þresti hér fyrir utan í dag. Ástarkveðja mamma
Unnur (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 8. apr. 2009
páskar framundan...
hæ hæ allt gott að frétta samasem sama ruglið á Fróni ha ha en sumarið í nánd... og páskarnir í næstu viku garðvinnufiðringur að segja til sín, hlakka til að sjá ykkur innan tíðar hérna heima...ævintýralegt að fara yfir fjöllin háu í flugi ha, mín hefði orðið lofthrædd :-)) kv.F
Fríður Garðarsdóttir, sun. 5. apr. 2009
Ja hérna hér
Ma ma mar er bara orðlaus yfir þessu ævintýri. Þetta er ekkert smá flott hjá ykkur. Mjög gaman að lesa og fylgjast með þessari ferð. Bíð eftir módel myndum af ykkur í nýju fötunum. Kv. Mekkín
Mekkín Ísleifsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 30. mars 2009
tanta Fíf
hæ hæ nú er frost á Fróni og vitlaust veður víða um land, kafald, sól og fallegt í dag... skil vel að komin sé smá heimþrá í stelpurnar, en velkomnar heim elskurnar og hlakka til að heyra öll smáatriðin sem þið hafið upplifað líka. Vona að allt gangi vel og þið komið heilar heim knús og kossar. Fíf
Fríður Garðarsdóttir, sun. 29. mars 2009
Kveðja
Ég tek undir með Unni, ég er dolfallinn, þetta hlýtur að vera frábær ferð hjá ykkur, og algjört ævintýri. Kveðja Björg Magnúsdóttir.
Björg Magnúsdóttir, fim. 19. mars 2009
Ja hérna
Maður situr alveg dolfallinn og les frásögnina með augun á stilkum .Þvílikt ævintýri og upplifun.Gangi ykkur allt að óskum.Ástarkveðja Mamma.
unnur (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 18. mars 2009
Kveðja
Eruð þið enn í rólegheitum Bíð spennt eftir næstu færslu Allt gott hér heima. Ástarkveðja Mamma.
Unnur (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 16. mars 2009
VÁÁÁ
Þetta er rosalegt ævintýri hjá ykkur, ætlaði aðeins að kíkja á síðuna en nei nei búin að sitja hér í einn og hálfan tíma að lesa allt bloggið að vísu las ég ferðasöguna afturábak komst að því þegar þið voruð allt í einu á Íslandi haha. En það kom ekki að sök, þetta var svo spennandi, allt svo nýtt og framandi fyrir manni. Megi guðirnir færa ykkur gleði og gæfu. Kv. Mekkín
Mekkín Ísleifsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 7. mars 2009
Blessuð
Æ Fríða mín vonandi ert þú orðin hress og getur notið ferðarinnar.Kveðja Anna Sch
Anna Scheving (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 28. feb. 2009
Ja hérna
Vonandi batnar ykkur fljótt og vel.Það er áreiðanlega gott að fá blessun hjá ekta munkum.Hér er fullyrt að Dalai Lama muni koma í heimsókn til Íslands í júní Kær kveðja til ykkar Mamma
Unnur (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 12. feb. 2009
hæ hæ
Maður missir andann og tapar gleðinni yfir helv....brúnni og allt þetta þverhnýpi??? guð hvað ég er fegin að vera í mjöllinni á Fróni ha ha þetta er ævintýri, landslagið minnir á fjöllin á Kúbu allt í halla. Ótrúlegt landslag. knús og kossar Fíf
Fríður Garðarsdóttir, mán. 2. feb. 2009
Allir hressir
Ég er alveg hugfangin af myndunum og ferðasögunni nema hengibrúnni Í þessum sporum hefði ég líklega sálast af lofthræðslu Gott að sjá ykkur hressar komnar yfir Lít alltaf daglega inn á síðuna Bíð eftir næstu færslu Bið að heilsa öllu gestrisna fólkinu Ástarkveðja mamma
Unnur Einarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 31. jan. 2009
Fríður frænka
Hæ hæ allt á kafi í snjó og fallegt veður smáfrost, á von á Elínu í morgunkaffi í fyrramálið hlakka til að hitta hana. Vona að allt gangi vel hjá ykkur kv. Fíf
Fríður Garðarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 29. jan. 2009
tanta Fíf
er aðeins að kíkja á ykkur, með jöfnu millibili..knús F
Fríður Garðarsdóttir, sun. 25. jan. 2009
Hálka
Sé ykkur í anda.Svo gaman að fylgjast með ykkur.Sagði Einari Bjarka vefsíðufangið ykkar og áframsendi til þeirra póstinn frá ykkur Allt gott hér.Fljúgandi hálka hér en allir í góðu standiÁstarkveðja mamma
Unnur Einarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 24. jan. 2009
Fíf
Hæ elskurnar, gaman að sjá allar þessar myndir, maður getur ekki gert sér í hugarlund hvernig er að vera á þessum stað, þetta er svo gjörólíkt... rokrassgat hérna eina ferðina enn... er að fara í vetrarfrí í næstu viku og ætla að hafa það nææææsss. kossar og knús Fíf
Fríður Garðarsdóttir, fim. 22. jan. 2009
veðurfréttir
-2,4c snjóaði í dag.Það er svo gaman að fylgjast með ferðum ykkar í máli og myndum Heilsið fallegu fjölskyldunni frá mér Gangi ykkur vel Mamma.
Unnur Einarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 18. jan. 2009
Frá Danmörkunni
Langt síðan síðast Hófý en við tökum þetta í eilífðinni. Glæsilegt hjá ykkur að kýla á þessa ferð, það verður ógleymanlegt. Biddu að heilsa Búdda ef þú sérð eitthvað þar uppi. Megi ykkur hitna ! Steini Richter
Steini (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 14. jan. 2009
Kveðja
Blessaðar Gott að fá fréttir frá ykkur og alltgangi vel Klukkan er hálf eitt að nóttu hitastig -4,3 snjóföl og heiðskírt.´Hér er órói,mótmæli mismunandi róleg en allt í lagi Ég hef fariðx3 Annars allt gott hjá okkur Ástarkveðja mamma
Unnur Einarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 14. jan. 2009
framh.
Jæja það tókst ha ha bara að prófa.. munið að líta ekki út eins og þið hafið ekki fari að heiman fyrr ha, ekki góna og góna hi hi knús Fif
Fríður Garðarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 12. jan. 2009
ævintýri
Halló gott að heyra frá ykkur, er að bögglast við að læra á þetta það vefst fyrir mér að beðið er um notendanafn og innskráningu???? gamla Fíf xxxxxkossar
Fríður Garðarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 12. jan. 2009
Góða ferð
Vildi bara láta ykkur vita að ég hugsa til ykkar allan tímann meðan þið eruð úti. Njótið ferðarinnar í botn og komið heilar heim. Kv. Gunnar Sigurðsson XOXO:D
Gunnar Sigurðsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 11. jan. 2009
dýrðlegt ævintýr....
Hæ Hólmfríður Mig langaði til að óska þér og samferðarfólkinu þínu góðrar ferðar á framandi slóðir. Megi þið gleði og gæfu njóta og koma heil og sæl heim aftur. Bestu kveðjur Elín systir
elín guðmundsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 7. jan. 2009
Til lukku med siduna
Flott sida hjá ykkur.Óska ykkur alls hins besta í framtídinni. Knus JEB
Johanna E.B. Malfridardottir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 31. des. 2008
Góðaferð
Fríða mín mig langar bara að óska þér og félugunum góðrar ferðar og alls góðs í ferðini.Gleðilegt ár .Anna Scheving
Anna Scheving (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 30. des. 2008
Stórkostlegt ferðalag framundan!
Dásamlegt! Ég hlakka ekkert smá til að fá að fylgjast með ferðum ykkar :-) Knús til ykkar Fríður tvær, sjáumst :-)
Ragnhildur Jónsdóttir, fim. 11. des. 2008
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar